Margar áhugaverðar gönguleiðir eru að finna í nágrenni Sauðárkróks.
Molduxi
Leiðarlýsing: Ekið eftir jeppavegi frá golfvelli GSS við Sauðárkrók upp í Molduxaskarð (65°42.72-19°41.96) og gengið þaðan.
Ýmsar upplýsingar: Göngutími í klst: 1,5 klst. Merkingar: Merkt Vörður: Nei Gönguhækkun: 240 Upphafsstaður: Molduxaskarð
Hegranesviti
Leiðarlýsing: Gengið frá gömlu brúnni á Vesturósi (65°45.03-19°33.10). Fallegt útsýni og mikið fuglalíf. Göngutími í klst: 1,5-2 klst. Lengd í km: 5 km Merkingar: Merkt Vörður: Nei Upphafsstaður: Vesturósbrú – gamla
Hólar í Hjaltadal
Gvendarskál
Stikuð gönguleið að Gvendarskál en þar er gestabók. Lagt af stað frá gestamóttökunni í Hólaskóla. Leiðin er upphaf gönguleiðar á Hólabyrðu. Göngutími í klst: 2 klst. Lengd í km: 4,5 km Merkingar: Merkt Vörður: Nei Gönguhækkun: 380 Upphafsstaður: Hólar
Varmahlíð
Reykjarhóll við Varmahlíð
Leiðarlýsing: Genginn hringur frá skógræktarstöðinni ofan við þéttbýlið. Mjög gott útsýni yfir Skagafjörð. Útsýnisskífa.
Ýmsar upplýsingar: Göngutími í klst: 0,5 klst. Lengd í km.: Merkingar: Merkt Vörður: Nei Upphafsstaður: Varmahlíð – skógrækt
Comentarios